57. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 153. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, þriðjudaginn 9. maí 2023 kl. 09:15
Opinn fundur


Mætt:

Guðrún Hafsteinsdóttir (GHaf) formaður, kl. 09:15
Ágúst Bjarni Garðarsson (ÁBG) 1. varaformaður, kl. 09:15
Ásthildur Lóa Þórsdóttir (ÁLÞ), kl. 09:15
Diljá Mist Einarsdóttir (DME), kl. 09:15
Guðbrandur Einarsson (GE), kl. 09:15
Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir (HHH), kl. 09:30
Indriði Ingi Stefánsson (IIS), kl. 09:15
Logi Einarsson (LE), kl. 09:15
Orri Páll Jóhannsson (OPJ) fyrir Steinunni Þóru Árnadóttur (SÞÁ), kl. 09:15

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Skýrsla fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabanka Íslands fyrir árið 2022 Kl. 09:15
Nefndin fjallaði um málið og fékk á sinn fund Ásgeir Jónsson seðlabankastjóra, Unni Gunnarsdóttur fráfarandi varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits og Björk Sigurgísladóttur varaseðlabankastjóra fjármálaeftirlits.

Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 10:50

Upptaka af fundinum